ÚTGEFiÐ EFNI
Kornið 2024
Við birtum nú nýja verðskrá fyrir árið 2024. Við lækkum verð ennfrekar frá áður útgefinni verðskrá sem gefinn var út 12. desember s.l. Með þessari verðlækkun fylgjum við eftir verðþróun á erlendum mörkuðum sem átt hefur sér stað frá því við birtum verðskrá í desember. Verðlækkunin nú er fyrst og fremst til komin vegna verðlækkunar á köfnunarefni (N).Verðskráin er með fyrirvara um prentvillur og getur breyst án fyrirvara.
ÚTGEFiÐ EFNI
Áburðarhandbókin
Áburðarhandbókin hentar öllum sem vilja fræðast um áburðarmál. Í áburðarhandbókinni koma fram ítarlegar upplýsingar um áburðartegundir sem í boði eru frá Yara hér á landi. Fjallað er um geymslu og meðhöndlun áburðar, áburðardreifingu og mikilvægi áburðaráætlana auk áburðarleiðbeininga og upplýsingum um mikilvæg næringarefni. Einnig eru upplýsingar um helstu þætti sem snúa að kölkun og ávinning af því að viðhalda réttu sýrustigi jarðvegs.
UPPLÝSINGAR
Umhverfisvottun
Yara hefur skuldbundið sig til að gera opinberar upplýsingar sínar um losun gróðurhúsalofttegunda við áburðarframleiðslu sína. Þetta gerir bændum, söluaðilum og öðrum er tengjast landbúnaði kleyft að velja umhverfisvænt og takmarka umhverfisáhrif frá landbúnaðinum.
– Yara ábyrgist að losun gróðurhúsalofttegunda frá framleiðslu áburðar sem er seldur í Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi sé lægri en 3,6 kg CO2-ígildi per kg N.
Meira