Kölkun hefur mikil og jákvæð áhrif á áburðarnýtingu. Með því að kalka og viðhalda réttu sýrustigi í jarðvegi næst að hámarka aðgengi og upptöku næringarefna. Kölkun er því afar mikilvæg. Best er að kalka að hausti og vori.
Dolomit Mg-kalk er hagkvæmur kalkgjafi. Gefinn er 3500 kr/t afsláttur til þeirra sem kaupa Yara áburð. Kalkið er til afgreiðslu á helstu höfnum landsins.
Við leggjum endurgjaldslaust til 6 Bredal kalkdreifara. Traustir verktakar dreifa kalkinu á hagkvæman hátt.
Við tökum jarðvegssýni og túlkum niðurstöður. Sölufulltrúar veita allar frekari upplýsingar.