Nú í vor voru lagðir út 28 sýningareitir á Hvolsvelli á vegum búvörudeildar SS. Markmið reitanna er að geta sýnt gestum og gangandi áhrif mismunandi áburðaskammta á korn og grænfóður. Einnig var sáð mismunandi grastegundum sem fengu sama áburðarskammt. Allur áburður sem var notaður er frá Yara.
Reitirnir eru staðsettir fyrir utan verslun okkar á Hvolsvelli, við Ormsvelli 4.
Korn:
- Anneli og Aukusti í 12 reiti.
- Allir reitir fengu 70 kg/ha af köfnunarefni en mismunandi magn af fosfór og kalí.
Grænfóður:
- Vetrarrýgresi Sikem og vetrarrepja Hobson í 12 reiti.
- Allir reitir fengu mismunandi áburðarskammta af N, P og K.
Gras:
- Hávingull Norild, túnvingull Reverent, vallarfoxgras Snorri og Engmó í 4 reiti.
- Allir reitir fengu sama áburðarskammt, 600 kg/ha af NPK 15-7-12.
Reitirnir eru vel merktir og er gestum og gangandi velkomið að ganga um reitina og virða þá fyrir sér.