Yara birti verðskrá 17. desember s.l. Frá þeim tíma hefur gengi evru styrkst um 2,6%. Margt bendir til þess að frekari styrking geti átt sér stað á komandi vikum. Við viljum koma ávinningi af gengisstyrkingu til bænda. Við viljum jafnframt gera enn betur þar sem tekist hefur að eyða óvissuþáttum m.a. vegna flutninga til landsins á áburði í vor og lækkum því verðskrá um 5000 kr/tonn án vsk. auk þess að heimkeyrsla á áburði til bænda er nú innifalin í verðskrá en áður var miðað við 2000 kr/tonn gjaldtöku vegna heimkeyrslu. Samtals er því um að ræða lækkun um 7000 kr/tonn.
Þeir bændur sem nú þegar hafa pantað Yara áburð njóta einnig þessar lækkunar. SS er í eigu bænda og gerir ekki upp á milli þeirra óháð búsetu og þess magns sem keypt er af áburði. Allir sitja við sama borð.
Framangreind 7000 kr/tonn lækkun jafngildir 5,3% lækkun miðað við verð á algengri áburðartegund eins og NPK 27-3-3 og 5,8% miðað við OPTI- KAS. Lækkunin er því umtalsverð.
Í ljósi aðstæðna á áburðarmörkuðum hvetjum við bændur til að panta áburð sem fyrst.
Nánari upplýsingar:
Kornið fréttabréf janúar 2022 : https://yara.is/kornid-januar-2022/
Verðskrá : https://yara.is/vorur/verdskra/
Sölufulltrúar : https://yara.is/vorur/solufulltruar/
Kölkun – spurt og svarað : https://yara.is/kolkun/
Hverjir dreifa kalkinu : https://yara.is/dreifingaradilar/