Við birtum nú verðskrá fyrir árið 2025. Verðskráin er með fyrirvara um prentvillur og getur breyst án fyrirvara.

 

Verðlækkun

Verðlækkun á Yara áburði frá janúar verðskrá 2024 er 5%.

Verð á OPTI-NS er nú 78.900 kr/t en var áður 82.900 kr/t. NPK 27-3-3 Se, verð nú 97.800kr/t en var 102.900 kr/t. Garðáburður NPK 12-4-18 er núna í boði á 120.600 kr/t en var áður 126.900 kr/t. Viljum vekja athygli á mjög góðu verði á KALKSALTPETER en verð er nú 59.900 kr/t. Allar fyrrgreindar fjárhæðir eru án virðisaukaskatts.
Nánari upplýsingar í verðskrá.

 

Greiðslukjör

Í boði er eitt verð. Gjalddagi áburðarkaupa er 15. maí 2025 en við seinkum gjalddaga um 15 daga frá fyrra tímabili. Einnig í boði greiðsludreifing fram til 15. október 2025, vaxtareiknuð frá gjalddaga 15. maí fram til greiðsludags með 5% ársvöxtum, sem jafngildir rúmlega 2% hærra verði sé greitt 15. október 2025 í stað 15. maí.

 

Frí heimkeyrsla á áburði ef pantað er fyrir 15. janúar 2025

Flutningstilboð á áburði er 2.500 kr/tonn án vsk. ef pantað er fyrir 6 tonn eða meira. Kostnaður við flutning á áburði minna en 6 tonn miðast við verðskrá flutningsaðila. Flutningstilboð á kalki 2.500 kr/tonn ef pantað er 20 tonn eða meira.

 

Nýjar áburðartegundir

Tvær nýjar áburðartegundir bættust við vöruframboðið í ár. Þær reyndust sérstaklega vel. NPK 22-3-10 hentar þar sem ekki er þörf á selen og getur þá komið í stað NPK 23-3-8 Se. NPK 17-5-13 er einnig ný og getur nýst þar sem þörf er á meira köfnunarefni en minni fosfór heldur en er í NPK 15-7-12.

 

Fimm tegundir sem allar innihalda selen

Yara leggur áherslu á að bjóða bændum góða valkosti til að auka selen í heyi og á beitarlönd enda víða selenskortur. Heyefnaniðurstöður hjá bændum sem hafa borið á selenbættan Yara áburð staðfesta með óyggjandi hætti góða selenstöðu gróffóðursins.

 

Einkorna gæðaáburður

Allur Yara áburður er einkorna gæða áburður þar sem öll næringarefnin eru í hverju korni en góð dreifing og nýting næringarefna í áburði getur skipt sköpun varðandi fóðrun og heilsufar gripa.

 

Yara áburður – Umhverfisvænn og vottaður

Með því að nota Yara einkorna áburð leggur þú þitt af mörkum til að draga úr kolefnislosun við framleiðslu búfjárafurða.

 

Kölkun, nýting búfjáráburðar og góð bústjórn

Mikilvægt er að gera áburðaráætlun byggða á heysýnum, jarðvegssýnum og skítasýnum, jafnframt því sem metið er hverju það skilaði sem borið var á í fyrra.

Hagkvæmt er að nýta allan búfjáráburð sem aðgangur er að til að draga úr notkun á tilbúnum áburði. Kölkun er mikilvæg til að áburður nýtist sem best. Dolomit Mg-kalkið frá Franzefoss Minerals hefur reynst bændum afar vel.

Áburðardreifingin skiptir miklu máli, að hún sé nákvæm og borin á einkorna gæða áburð þannig að öll næringarefnin skili sér með skilvirkum hætti.

Starfsmenn SS veita faglega þjónustu við túlkun niðurstaðna úr sýnatökum, gerð áburðaráætlana og val á Yara áburði sem hentar hverju sinni.