Ársskýrsla áburðareftirlits Matvælastofnunar hefur verið birt á vef stofnunarinnar. Í skýrslunni er að finna helstu niðurstöður eftirlits með áburði á árinu 2018. Þar fengum við enn eina staðfestinguna á afgerandi gæðum Yara áburðar. Alls voru tekin sýni af 8 tegundum frá Yara árið 2018. Allar niðurstöðu gáfu gildi yfir leyfðum vikmörkum og því voru engar áburðartegundir teknar af skrá.

Bændur geta því sem fyrr stólað á að hvert áburðarkorn frá Yara innihaldi uppgefin næringarefni. Hér er hlekkur inn á eftirlitsskýrsluna:

http://mast.is/library/Sk%C3%BDrslur/Aburdarskyrsla-2018.pdf