Persónuvernd
Persónuverndarstefna
Persónuupplýsingar sem unnið er með þegar þú hefur samskipti við Sláturfélag Suðurlands:
Þegar þú átt í samskiptum við starfsfólk okkar símleiðis, í tölvupósti, eða í persónu söfnum við þeim upplýsingum sem nauðsynlegt er fyrir okkur til að sinna erindi þínu. Þetta getur verið nafn, póstfang, símanúmer, tölvupóstfang eða annað sem nauðsynlegt er í hverju tilfelli fyrir sig. Við reynum í öllum tilfellum að takmarka vinnslu og söfnun persónuupplýsinga.
Í þeim tilfellum þar sem persónuupplýsingar eru skráðar þá skuldbindur Sláturfélag Suðurlands sig til þess að geyma þær á öruggan hátt og mun ekki miðla þeim áfram til þriðja aðila, nema til þjónustuaðila sem vinna að verkefnum fyrir hönd félagsins, svo sem vegna innheimtu reikninga, sbr. nánar hér að neðan.
Sláturfélag Suðurlands svf. og dótturfélög senda greiðslu- og innheimtutilkynningar með tölvupósti eða öðrum viðeigandi rafrænum leiðum. Vegna þjónustunnar er nauðsynlegum tengiliða- og kröfuupplýsingum miðlað til Motus ehf., sem annast innheimtuna. Viðskiptavinir eru beðnir um að halda skráðum tengiliðaupplýsingum réttum og tilkynna breytingar á þeim. Nánari upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga hjá Motus má finna í persónuverndarstefnu félagsins á motus.is.
Forsendur fyrir því að við vinnum og nýtum þessar upplýsingar til þess að sinna þeirri þjónustu sem óskað er eftir eru lögmætir hagsmunir okkar og að slík vinnsla er nauðsynleg fyrir starfsemina.
Sláturfélag Suðurlands selur aldrei persónugreinanlegar upplýsingar um viðskiptavini sína.
Þú átt rétt á að sjá þær persónuupplýsingar sem við eigum um þig og í sumum tilfellum að þær séu leiðréttar eða jafnvel eytt.
Fyrirspurnum varðandi persónuverndarmál og vinnslu persónuupplýsinga skal beint á netfangið: snorri@ss.is.
Síðast uppfært: 12.11.2026