Yara Áburðarhnífur
9.653 kr.
Yara áburðarhnífurinn auðveldar þér að opna áburðarsekki yfir áburðardreifaranum. Hann er hannaður til að auðvelda þér starfið og auka öryggi.
Verð án vsk.: 9.653 kr
Verð með vsk.: 11.970 kr
Yara áburðarhnífurinn samanstendur af nokkrum hlutum. Ekki má skipta um neinn af þessum hlutum eða breyta hnífnum að neinu leiti. Hver partur er hannaður og framleiddur með ákveðið hlutverk í huga.
Til að nota hnífinn skal byrja á að fjarlægja hann úr umbúðunum. Fyrir notkun er mælt með að athuga hvort blaðið hafi nokkuð skemmst í flutningum. Þegar nota á hnífinn skal ávalt hafa báðar hendur á handfanginu. Þar að auki er mikilvægt að passa að notandi standi ekki of nálagt pokanum og aldrei sé staðið undir honum. Við notkun þá er hnífurinn settur í lengstu stillingu þar til smellur heyrist og þá er hægt að skera sekkinn með honum.
Passið að draga hnífinn saman aftur, þegar hann er ekki í notkun, þannig að blaðið hverfi inn í hólkinn og það heyrist smellur.
Yara áburðarhnífurinn er aðeins hugsaður til að opna áburðarsekki og ekki í neinn annan tilgang. Aðeins er hægt að tryggja virkni hans ef hann er notaður í réttum tilgangi.
Notkunarleiðbeiningar
Þegar hnífurinn er notaður er mikilvægt að tryggja:
- Að notandi standi á jöfnu og stöðugu undirlagi.
- Að notandi sé aldrei staðsettur undir áburðarsekkinum.
- Að ávalt sé notast við báðar hendur þegar nota á hnífinn.
- Að hnífurinn sé dreginn alla leið út þar til smellur heyrist áður en hann er notaður.
- Að ávalt sé gengið frá hnífnum eftir notkun og að hann sé dreginn saman þar til smellur heyrist.
- Að ávalt sé fylgt almennum öryggisreglum í meðhöndlun áburðar og vinnuvéla.
- Að hnífurinn sé aðeins notaður í þeim tilgangi sem hann var hannaður fyrir.
- Hafðu samband við Sláturfélag Suðurlands ef einhver galli finnst að áburðarhnífnum.
Geymið hnífinn á þurrum og öruggum stað. Geymist þar sem börn ná ekki til. Hnífurinn skal ávalt vera lokaður þegar hann er ekki í notkun.