Nú í vor var sáð byggi og höfrum í sýningarreiti fyrir framan búvöruverslun SS á Hvolsvelli. Markmið reitanna er að sýna gestum og gangandi áhrif mismunandi áburðarskammta á korn.
Til að bygg og hafrar þrífist sem best er mikilvægt að sýrustigið sé rétt því var tekið jarðvegssýni úr reitnum nú í vor og er sýrustigið pH 6,26 sem telst viðunandi. Bygg gerir kröfur um að sýrustigið sé á bilinu pH 6,0-6,5 og hafrar pH 5,8-6,3.
Sýrustigið pH er eitt af lykilatriðum sem þarf að vera í lagi til að ná hámarksuppskeru í kornrækt.
“Rétt” sýrustig pH:
Öflugri rætur → betri upptaka næringarefna → meiri og betri uppskera!