Við birtum nú verðskrá fyrir árið 2026. Verðskráin er birt með fyrirvara um prentvillur og getur breyst án fyrirvara.

 

Verðhækkun

Verðhækkun á Yara áburði frá desember verðskrá 2024 er að jafnaði um 7%. Yara áburður lækkaði hins vegar árið á undan um 5%, þannig að hækkun síðustu 2ja ára er um 2%.

Óvissa er um þróun áburðarverðs eftir áramót, m.a. vegna upptöku kolefnisgjalds CBAM(Carbon Border Adjustment Mechanism) á kolefnisframleiðslufrekar vörur sem verið er að flytja inn til Evrópusambandsríkja, þ.m.t. áburð, en gjaldinu er ætlað að jafna aðstöðumun fyrirtækja vegna vara sem framleiddar eru utan Evrópusambandsins og hvetja jafnframt til aðgerða til að draga úr kolefnislosun við framleiðslu.

Verð á OPTI-NS er nú 84.500 kr/t en var áður 78.900 kr/t. NPK 27-3-3 Se, verð nú 104.900 kr/t en var 97.800 kr/t. NPK 22-3-10 er nú í boði á 102.100 kr/t en var áður 99.200 kr/t. sem er tæp 3% hækkun milli ára. Allar fyrrgreindar fjárhæðir eru án virðisaukaskatts.

Nánari upplýsingar í verðskrá.

 

Greiðslukjör

Í boði er eitt verð. Gjalddagi áburðarkaupa er 15. maí 2026. Einnig í boði greiðsludreifing fram til 15. október 2026, vaxtareiknuð frá gjalddaga 15. maí fram til greiðsludags með 5% ársvöxtum, sem jafngildir rúmlega 2% hærra verði sé greitt 15. október 2026 í stað 15. maí.

 

Frí heimkeyrsla á áburði ef pantað er fyrir 15. janúar 2026

Flutningstilboð á áburði er 2.500 kr/tonn án vsk. ef pantað er fyrir 6 tonn eða meira. Kostnaður við flutning á áburði minna en 6 tonn miðast við verðskrá flutningsaðila. Flutningstilboð á kalki 2.500 kr/tonn ef pantað er 20 tonn eða meira.

 

Nýjar áburðartegundir

Tvær nýjar áburðartegundir bættust við vöruframboðið í fyrra. Þær reyndust sérstaklega vel. NPK 22-3-10 hentar þar sem ekki er þörf á selen og getur þá komið í stað NPK 23-3-8 Se og NPK 17-5-13 getur nýst þar sem þörf er á meira köfnunarefni en minni fosfór heldur en er í NPK 15-7-12.

 

Fimm tegundir sem allar innihalda selen

Yara leggur áherslu á að bjóða bændum góða valkosti til að auka selen í heyi og á beitarlönd enda víða selenskortur. Heyefnaniðurstöður hjá bændum sem hafa borið á selenbættan Yara áburð staðfesta með óyggjandi hætti góða selenstöðu gróffóðursins.

 

Einkorna gæðaáburður

Allur Yara áburður er einkorna gæða áburður þar sem öll næringarefnin eru í hverju korni en góð dreifing og nýting næringarefna í áburði getur skipt sköpun varðandi fóðrun og heilsufar gripa.

 

Yara áburður – Umhverfisvænn og vottaður

Allur Yara áburður er einkorna gæða áburður þar sem öll næringarefnin eru í hverju korni en góð dreifing og nýting næringarefna í áburði getur skipt sköpun varðandi fóðrun og heilsufar gripa.

 

Kölkun, nýting búfjáráburðar og góð bústjórn

Mikilvægt er að gera áburðaráætlun byggða á heysýnum, jarðvegssýnum og sýnum úr búfjáráburði, jafnframt því sem metið er hverju það skilaði sem borið var á í fyrra.

Hagkvæmt er að nýta allan búfjáráburð sem aðgangur er að til að draga úr notkun á tilbúnum áburði. Kölkun er mikilvæg til að áburður nýtist sem best. Dolomit Mg-kalkið frá Franzefoss Minerals hefur reynst bændum afar vel.

Áburðardreifingin skiptir miklu máli, að hún sé nákvæm og borin á einkorna gæða áburður þannig að öll næringarefnin skili sér með skilvirkum hætti.

Starfsmenn SS veita faglega þjónustu við túlkun niðurstaðna úr sýnatökum, gerð áburðaráætlana og val á Yara áburði sem hentar hverju sinni.