YaraVita STARPHOS MnP (10 L)

14.500 kr.

Lesa meira
Vörunúmer: ABH192 Flokkar: , , , ,

Tegund og efnainnihald

Áburðartegund: YaraVita STARPHOS MnP

  • P
    3,9%
  • S
    4%
  • Mn
    7%

Notkunarleiðbeiningar

Setið brúsan á hvolf og hristið vel fyrir notkun svo að allt efnið blandist vel. Gott að prófa granna
málningarhræru og borvél ef efnið situr fast í botni. Fylltu á tankinn um ¾ af vatni.Helltu efninu
hægt í tankinn með áfyllingarsíu og hrærðu á meðan. Tómar umbúðir: Skolið þrisvar sinnum.
Skolvatninu er blandað saman við álagningarlausnina. Vel þrifnar tómar umbúðir eru afhentar
á þar til gerðum endurvinnslustað.

Bygg, Hveiti og Hafrar

3 lítrar/ha + 200 lítrar af vatni/ha frá 2. laufgunarstigi
Bera skal aftur á eftir 10-14 daga ef þörf er á.

Við húðun á fræi: 3-5 lítrar notast á 1 tonn af sáðkorni.

Kálplöntur, Gulrætur

3 lítrar/ha + 200 lítrar vatn/ha á 4. laufgunarstigi. Ef um
miðlungsmikinn og alvarlegan næringarskort er að ræða er meðferðin endurtekin
með 10–14 daga millibili.

Gras (Túnrækt)

3 lítrar/ha + 200 lítrar af vatni/ha, um leið og vöxtur hefst.
Ekki bera á seinna en 14 dögum fyrir slátt.

Repja (Olíurepja)

3 lítrar/ha + 200 lítrar af vatni/ha frá 3-4. laufgunarstigi.
Bera skal aftur á eftir 10-14 daga ef þörf er á.

Kartöflur

3 lítrar/ha + 200 lítrar af vatni/ha einni viku eftir að lauf eru komin upp úr
mold. Ef um miðlungsmikinn og alvarlegan næringaskort er að ræða er meðferðin
endurtekin með 10-14 daga millibili. Aukalega má bæta við 3 lítrum/ha þegar hnýðin
eru að stækka en þetta gefur stærri hnýði.

Geymsla
Varan skal vera geymd þar sem er bæði þurrt og kalt í húsnæði sem hentar til geymslu
efna og hvorki börn né dýr geta komist í vöruna. Vernda skal vöruna frá frosti.

Verðupplýsingar

Verðupplýsingar:
Verð kr/brúsa án vsk 14.500
Virðisaukaskattur kr/brúsa 3.480
Pakkningastærð 10 L brúsi

Framleiðslu- og öryggisupplýsingar

Öryggisblað STARPHOS MnP – smellið hér